Enn á ný er komið nýtt ár! Þarf alltaf að venjast því í nokkra daga að það sé komið nýtt ár en venjan er nú samt sú að það hafist að lokum;) Í dag var almennt heilsuleysi á okkar heimili og það skánaði allavega ekki mikið þegar kom að þrifum upp í Centerbygning. Það hafði öllu leirtaui ásamt matarleyfum verið skellt inn í eldhús og ekki einu sinni skolað af. Síðan vorum við alltof mörg í frekar litlu eldhúsi að vaska upp því þegar uppþvottavélin var fullt sást varla að það hefði nokkuð verið tekið í burtu!!
Þegar við fengum lystina aftur þá fengum við okkur hangikjöt, uppstúf og laufabrauð í kvöldmat og drukkum jólaöl með!! Nú er bara málið að reyna að snúa sólarhringnum aftur við þ.a. við getum mætt í skólann á mánudaginn. Eyrún22:50Comment<