Í dag er fastelavn hér í Danmörku, sem er eiginlega bæði bolludagur og öskudagur í einum degi. Næstum allir sem voru á spilakvöldinu á föstudaginn fjölmenntu heim til Halla og Anne og borðuðu miklu meira en nauðsyn var þ.a. við vorum næstum afvelta á eftir. Börnin vöktu mikla kátínu á meðal fullorðna fólksins og sérstaklega litlu strákarnir Guðni Rafn og Hákon (8 og 4 mánaða). Tókum nokkrar myndir og eru þær komnar í albúmið okkar (myndirnar frá föstudagskvöldinu eru líka komnar inn). Eyrún20:51Comment<