Það verður seint af mér tekið að vera klaufabárður, það er alveg á hreinu. Nýjasta sem ég tók upp á það var að lyfta upp bökunarplötunni með óbakaðri pizzunni á og snúa henni síðan alveg óvart aðeins of mikið þ.a. hún endaði á hvolfi á eldavélinni!!! Jobbi ætlaði að byrja að þykjast e-ð vera alvarlegur en var ekki lengi að missa sig í hláturinn þegar ég lá í kasti og gat varla sagt honum hvað hefði komið fyrir!! Tók myndir af öllum herlegheitunum en vegna leiðinda með serverinn hérna þá get ég ekki hent þeim inn!
Update 15.2.04 Myndir af herlegheitunum...
Eyrún19:42Comment<