Þetta heim hugtak er orðið töluvert brenglað, ég fer heim til Íslands og svo líka heim til Danmerkur þ.a. ég er í raun alltaf á heimleið;) Við fórum heim með sömu flugvél og Helga Björt og Ingibjörn og var Imba búin að taka frá sæti fyrir okkur öll í fremstu röðinni þ.a. það var alveg feikinóg pláss fyrir fæturnar. Þegar við vorum nýkomin heim þá kom Fjóla færandi hendi úr búðinni en hún hafði keypt brauð, jógúrt og mjólk handa okkur þ.a. við þurfum ekki að fara í búðina fyrr en á morgun, ALGJÖR SNILLD!!! Takk fyrir hugulsemina!!!
Í kvöld er svo afmæli hjá Nínu í 13A en við misstum víst af alveg svaðalegu partíi hér um síðustu helgi þar á bæ.
Síðan síðustu skrif höfum við bókstaflega verið á fullu!! Komum aftur í bæinn á laugardeginum og fórum þá aftur upp í Bláfjöll. Sunnudagurinn var dagur heimsókna og á mánudaginn vorum við að útrétta og heimsækja ennþá meira. Hefðum líklegast þurft helmingi lengri tíma á landinu til að geta gert allt sem við höfðum áhuga á að gera og hugsanlega að ná að slappa pínulítið af.
Svekkelsi ferðarinnar er tvímælalaust samt að ferðatölvan okkar kom úr viðgerð í gær og pabbi kom ekki með hana heim fyrr en um kvöldið en þá gleymdu þeir alveg að ganga frá henni, þ.e. vantaði lokið yfir netkortið og e-rjar fleiri skrúfur! Erum alveg frekar mikið svekkt yfir því.
Annars er núna kominn tími til að slétta hárið ef ég á að geta farið út úr húsi á eftir... ekki læt ég sjá mig eins og e-ð lukkutröll;) Eyrún18:23Comment<