Loksins, loksins, getur maður valið sér föt í ljósi en ekki alltaf í myrkri!! Jobbi var alveg rosalega duglegur og drullumixaði ljósið í svefnherberginu. Síðan ljósið var skrúfað upp í loftið s.l. október og við komumst að því að enginn var straumurinn úr dósinni þá höfum við bara haft einn lítinn lampa inni í herberginu. Vorum nú eiginlega alveg komin með nóg af því þ.a. Jobbi setti bara innstungu á snúrunu og í fjöltengi. Þurfum því núna að slökkva á fjöltenginu til að slökkva á ljósinu í staðin fyrir að hægt sé að nota rofann á veggnum. Við erum hvort eð er soddan nördar að það skiptir engu máli;) Eyrún16:03Comment<