Var ekkert smá gaman hjá okkur í gærkveldi þegar Íslendingarnir á kollegíinu ásamt brottfluttum Íslendingum af kollegíinu söfnuðust saman uppí Center og spiluðu vist, fótboltaspil, pool og Partýspili? ásamt því að borða ALLTOF mikið af alls konar gúmmelaði. Börnin fengu öll að vera með framan af en var síðan komið í háttinn inni í læriherberginu þar sem það nennti víst enginn að læra þetta kvöldið;) Við Jobbi unnum nú ekki neitt en það var samt ekki hægt annað en samgleðjast sigurvegaranum því hann lenti víst einu sinni fyrir nokkru síðan í því að sitja fastur allan tímann á sama borðinu, þ.e. tapaði alltaf.
Nú er pabbi mættur til Danmerkur og á leiðinni með lest til okkar. Hann ætlar að vera hjá okkur þar til á morgun og svo aftur í lok vikunnar í eina nótt. Hann er að fara til Cannes á tæknisýningu og valdi að sjálfsögðu að koma aðeins við hjá okkur í leiðinni:) Annars er þetta í 5. sinn sem ég hitti pabba síðan við fluttum út þ.a. ég get nú ekki kvartað yfir því að hitta hann sjaldan. Ekkert nema gott um það að segja:-) Eyrún12:56Comment<