Var sko að gera góða hluti í dag:-) Ásamt mér að sjálfsögðu og Jobba soldið líka. Upphaflega planið var bara að baka pönnukökur (btw. rétt eftir hádegi en við ekki búin að borða neitt), en síðan langaði okkur líka í kanilsnúða og þegar ég var að fletta bókinni þá sá ég líka nokkuð girnileg Tehorn sem við gerðum bara líka. Stóð því upp á kant í eldhúsinu í allavega 4 klst að baka!! Á núna líka alveg fullt af gúmmulaði sem fer í frystinn þ.a. við getum tekið út og með okkur í skólann á næstunni.
Ég er alveg orðin nokkuð stolt af framistöðu okkar í eldhúsinu eftir að við fluttum út! Miðað við hvað við sökkuðum big time heima á Eggertsgötunni þá er varla að sjá að um sama fólk sé að ræða!!! Hef síðan núna tæpa viku til að ákveða hvað verður í matinn þegar pabbi kemur til okkar í eina nótt... spurði hvort hann hefði e-rjar óskir en ég veðja á að hann segi bara alveg sama!!
Að lokum er ekki úr vegi að óska Simma tengdapabba til hamingju með afmælið í dag! Leyfi mér að efast um að hann lesi þetta en ég vona bara að e-r skili þessu til hans;) Eyrún17:38Comment<