Það styttist ÍSKYGGILEGA í þetta blessaða munnlega próf sem ég er að fara í!!!!! Því miður kann ég efnið ENGAN vegin nógu vel en ég vona samt að það dugi til að maður slefi yfir sexuna. Svo framarlega sem ég fæ 10 einingar fyrir þennan kúrs þá verð ég ánægð, þó svo að ég kunni ekki efnið eftir hann alveg nógu vel skiptir minna máli því þetta er ekkert tengt mínu aðalsviði. Tók þennan kúrs því mér fannst þetta áhugavert efni, en endaði síðan á að vera alltof mikið efni og alltaf mikil vinna og frekar glataðir fyrirlestrar:/ Þetta er s.s. í sama kúrs og við vorum rúman sólarhring stanslaust í skólanum að gera skýrslu!! Eyrún11:51Comment<