Þetta eru nú meiri skrípalætin heima á Fróni. Að mörgu leiti hefur mér þótt Davíð Oddson fara hamförum undanfarið (í neikvæðum skilningi) en sammála var ég að það þurfi að setja e-s konar lög um fjölmiðlana. Þetta ákveðna frumvarp hef ég hvorki haft tíma né of mikinn áhuga á að lesa þ.a. ég veit ekki hvort ég vildi fá nákvæmlega þetta eða aðeins öðruvísi frumvarp.
Hvernig svo sem frumvarpið hefði verið á meðan það tekur á eignarhaldi fjölmiðla þar sem það skaðar á e-n hátt Norðurljós, þá hefði fjölmiðlaumræðan ALREI getað orðið réttmæt. Það finnst mér bara einmitt sýna ókostinn við það að stór hluti fjölmiðlanna sé í eigu sama einstaklings eða fyrirtækis. Það hefur bara sýnt sig að eigendurnir stjórna mikið til því sem í gegnum fréttastofurnar fer. Eins hefur mér fundist af spjallþráða- og bloggumræðu á netinu að margir eru MJÖG á móti þessu frumvarpi af því að þeir eru á móti Davíð Oddsyni eða e-rjir aðrir eru búnir að segja þeim að vera á móti þessu. Eyrún19:08Comment<