Eins og það er nú gott og gaman að vera í fríi þá er samt eins gott að passa að manni leiðist ekki of mikið. Hingað til hefur ekki verið nein hætta á ferð hjá okkur;) Það eru nú heldur ekki nema 2 dagar síðan fjölskyldan yfirgaf okkur en við erum samt búin að vera nokkuð dugleg við að ganga frá hérna hjá okkur og enn er sko alveg nóg eftir. Þegar mikið lá við og taka þurfti til í flýti í vetur var dótinu oftast bara komið fyrir inni í litla herbergi og það átti svo að ganga frá því síðar. Nú er liðið að þessu síðar.
Einnig erum við farin að undirbúa ferðina okkar til Noregs um næstu helgi. Kaupa það sem okkur vantar og þess háttar og sjá til þess að okkur vanti nú ekkert. Það eina sem skyggir á er blessaða veðurspáin, hún er rigning alveg út vikuna í Osló. Nú erum við að spá hvort við förum kannski bara ekki fyrr en á laugardaginn því ekki nennum við að vera í tjaldi í úrhellisrigningu nema í ÍTRUSTU neyð. Það kemur allt í ljós síðar. Eyrún15:25Comment<