|
fimmtudagur, febrúar 26Fullt af snjó!!! Veturkonungur hefur all hressilega minnt á tilvist sína en þegar við vöknuðum í morgun var mesti snjór sem ég hef séð hér í Danmörku. Reyndar telst það ekki fullt á íslenskan mælikvarða og ennþá síður á norðlenskan en samt snjór núna yfir öllu í staðin fyrir snjóföl sem hefur einstaka sinnum sést hingað til. Sem betur fer er ekki skóli hjá okkur í dag því ég g.r.f. að umferðin geti verið frekar leiðinleg. Reyndar ætluðum við í búðina, bæði að versla í matinn og ekki síður mikilvægt var að kaupa kassa af Carslberg bjór en við eigum eftir að athuga hvort við nennum að dröslast á hjólinu í snjónum... mánudagur, febrúar 23Vorið hætti við að koma Búið að vera algjört gluggaveður hérna síðustu vikuna, þ.a. stundum eftir hádegi þá hefur verið algjör steik inni í íbúðinni út af sólinni. Hitinn úti hefur ekkert verið neitt svakalega hár og það hefur minnt mann á að vorið væri ekki alveg komið. Í gær hins vegar þegar við vorum í miðju bollukaffinu þá byrjaði að snjóa og ekkert smá mikið, reyndar bara í stuttan tíma þ.a. það kom ekkert svaka mikill snjór en nóg til þess að krakkarnir hentust út að leika í snjónum. Í gærkveldi var þessi litli snjór síðan að mestu farinn en í nótt snjóaði síðan aftur og nú er þunn snjófönn yfir öllu. sunnudagur, febrúar 22Fastelavn Í dag er fastelavn hér í Danmörku, sem er eiginlega bæði bolludagur og öskudagur í einum degi. Næstum allir sem voru á spilakvöldinu á föstudaginn fjölmenntu heim til Halla og Anne og borðuðu miklu meira en nauðsyn var þ.a. við vorum næstum afvelta á eftir. Börnin vöktu mikla kátínu á meðal fullorðna fólksins og sérstaklega litlu strákarnir Guðni Rafn og Hákon (8 og 4 mánaða). Tókum nokkrar myndir og eru þær komnar í albúmið okkar (myndirnar frá föstudagskvöldinu eru líka komnar inn). laugardagur, febrúar 21Spilavist Var ekkert smá gaman hjá okkur í gærkveldi þegar Íslendingarnir á kollegíinu ásamt brottfluttum Íslendingum af kollegíinu söfnuðust saman uppí Center og spiluðu vist, fótboltaspil, pool og Partýspili? ásamt því að borða ALLTOF mikið af alls konar gúmmelaði. Börnin fengu öll að vera með framan af en var síðan komið í háttinn inni í læriherberginu þar sem það nennti víst enginn að læra þetta kvöldið;) Við Jobbi unnum nú ekki neitt en það var samt ekki hægt annað en samgleðjast sigurvegaranum því hann lenti víst einu sinni fyrir nokkru síðan í því að sitja fastur allan tímann á sama borðinu, þ.e. tapaði alltaf. Nú er pabbi mættur til Danmerkur og á leiðinni með lest til okkar. Hann ætlar að vera hjá okkur þar til á morgun og svo aftur í lok vikunnar í eina nótt. Hann er að fara til Cannes á tæknisýningu og valdi að sjálfsögðu að koma aðeins við hjá okkur í leiðinni:) Annars er þetta í 5. sinn sem ég hitti pabba síðan við fluttum út þ.a. ég get nú ekki kvartað yfir því að hitta hann sjaldan. Ekkert nema gott um það að segja:-) fimmtudagur, febrúar 19120 kanilsnúðar Ekkert smá dugleg, búin að baka rúml. 120 kanilsnúða fyrir spilakvöld sem verður á morgun hérna á kollegíinu. Þeir eru flestir frekar litlir og ekkert smá krúttlegir:-) Til hamingju með afmælið mamma mín Því miður get ég komið óvænt í afmælisveisluna til mömmu eins og ég gerði þegar pabbi átti afmæli í nóvember. Margrét spurði mig einmitt að því í gær hvort hún gæti átt von á mér, vill held ég reyna að koma í veg fyrir álíka viðbrögð og þegar hún mætti í afmælið og ég tók á móti henni. Svo er líka ansi skemmtileg afmæliskveðja til mömmu frá Guðna og Ingunni í Fjarðapóstinum í blaðinu sem kom út í dag á bls 6. miðvikudagur, febrúar 18MSN hrísgrjón Svo snilldarlega komst Jobbi að orði þegar við ræddum um hvað hrísgrjónin væru vond og ofsoðin. Þegar maður dettur í msn á meðan maður er að sjóða hrísgrjón og gleymir að stilla timer þá er nefnilega voðin vís;) Jobbi reyndi e-ð að halda því fram að þetta gerðist bara hjá mér... en ég blæs nú á svoleiðis rugl og vitleysu;) hehehe sunnudagur, febrúar 15Stóra bakstursbókin Var sko að gera góða hluti í dag:-) Ásamt mér að sjálfsögðu og Jobba soldið líka. Upphaflega planið var bara að baka pönnukökur (btw. rétt eftir hádegi en við ekki búin að borða neitt), en síðan langaði okkur líka í kanilsnúða og þegar ég var að fletta bókinni þá sá ég líka nokkuð girnileg Tehorn sem við gerðum bara líka. Stóð því upp á kant í eldhúsinu í allavega 4 klst að baka!! Á núna líka alveg fullt af gúmmulaði sem fer í frystinn þ.a. við getum tekið út og með okkur í skólann á næstunni. Ég er alveg orðin nokkuð stolt af framistöðu okkar í eldhúsinu eftir að við fluttum út! Miðað við hvað við sökkuðum big time heima á Eggertsgötunni þá er varla að sjá að um sama fólk sé að ræða!!! Hef síðan núna tæpa viku til að ákveða hvað verður í matinn þegar pabbi kemur til okkar í eina nótt... spurði hvort hann hefði e-rjar óskir en ég veðja á að hann segi bara alveg sama!! Að lokum er ekki úr vegi að óska Simma tengdapabba til hamingju með afmælið í dag! Leyfi mér að efast um að hann lesi þetta en ég vona bara að e-r skili þessu til hans;) föstudagur, febrúar 13Klaufabárður is my middle name Það verður seint af mér tekið að vera klaufabárður, það er alveg á hreinu. Nýjasta sem ég tók upp á það var að lyfta upp bökunarplötunni með óbakaðri pizzunni á og snúa henni síðan alveg óvart aðeins of mikið þ.a. hún endaði á hvolfi á eldavélinni!!! Jobbi ætlaði að byrja að þykjast e-ð vera alvarlegur en var ekki lengi að missa sig í hláturinn þegar ég lá í kasti og gat varla sagt honum hvað hefði komið fyrir!! Tók myndir af öllum herlegheitunum en vegna leiðinda með serverinn hérna þá get ég ekki hent þeim inn! Update 15.2.04 Myndir af herlegheitunum... fimmtudagur, febrúar 12Det Modsatte Køn Vorum að enda við að horfa á kynin keppa á Viasat3. Byruðum alveg óvart að horfa á þáttinn þar sem Kill Bill virkaði ekki í spilaranum okkar. Ekki var heldur verra að konurnar unnu karlana:-) Var reyndar ekki fyrr en rétt á endasprettinum en það hafðist hjá þeim;) Ljós í svefnherberginu:-) Loksins, loksins, getur maður valið sér föt í ljósi en ekki alltaf í myrkri!! Jobbi var alveg rosalega duglegur og drullumixaði ljósið í svefnherberginu. Síðan ljósið var skrúfað upp í loftið s.l. október og við komumst að því að enginn var straumurinn úr dósinni þá höfum við bara haft einn lítinn lampa inni í herberginu. Vorum nú eiginlega alveg komin með nóg af því þ.a. Jobbi setti bara innstungu á snúrunu og í fjöltengi. Þurfum því núna að slökkva á fjöltenginu til að slökkva á ljósinu í staðin fyrir að hægt sé að nota rofann á veggnum. Við erum hvort eð er soddan nördar að það skiptir engu máli;) Strætisvagnabílstjórar í verkfalli Heima á Íslandi hefði verkfall hjá strætóbílstjórum ekki komið neitt við mig en þegar maður er ansi háður almenningssamgöngum þá versnar aðeins í því. Í morgun átti ég reyndar að fara í verklegt með Gunna sem býr hér á kollegíinu líka og gat ég því sníkt far með honum og fengu Jobbi, Fjóla og Ingólfur að fljóta með líka og mættu þá bara í staðin klukkutíma of seint. Skv. fréttum áttu vagnarnir líklegast að byrja að ganga aftur kl. 9 þ.a. við höfðum nú ekki miklar áhyggjur af því að koma heim. Hins vegar kom í ljós að næstum allir vagnar sem nálgast kollegíið okkar lágu niðri í ALLAN dag, var einn sem átti að ganga MJÖG óreglulega, s.s. maður gat beðið og beðið og bara vonað það besta! Til allrar hamingju fór Gunni aftur heim eftir tilraunina þ.a. við Jobbi og Fjóla gátum aftur fengið að fljóta með heim. Á morgun á síðan kannski að vera aftur verkfall, kemur í ljós í fyrramálið. Þetta er ekki mjög hvetjandi til að bíða með bílakaup. sunnudagur, febrúar 8Þorrablót ÍFK Fórum í gær ásamt fullt af öðrum Íslendingum á þorrablót Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn sem haldið var niðrí Christianiu. Var ÞRUSU stuð og ég held að flestir ef ekki allir hafi skemmt sér alveg konunglega! Hljómsveitin sem sá um að halda stuðinu upp var Skítamórall en Benni vinur hans Jobba spilaði á trommur með þeim. Við skemmtum okkur því bæði með Íslendingunum hér á kollegíinu og Írisi kærustu Benna sem eins og hinar kærustur hljómsveitarmeðlimanna urðu að skemmta sér án maka sinna. Áður en við fórum í partý niðrí bæ þá ætluðum við Jobbi að fara niðrí bæ og fara út að borða. Eitthvað gekk mér nú hægt að finna mig til þ.a. við enduðum á að panta pizzu með Önnu Karen og Kára og Guðný og Robba sem búa hérna á kollegíinu. Ef við ættum bíl þá myndum við sko miklu oftar panta pizzu, maður hringir og leggur strax af stað og hún er tilbúin þegar maður kemur, tekur samt bara örfáar mínútur að keyra þangað. Svo kostar líka ein pizza bara innan við 50dkr sem er annað en morðið heima þegar manni langar í pantaða pizzu. Eftir öll herlegheitin í nótt náðum við í taxa með Fjólu og Ingólfi allaleið neðan úr Christianiu og heim, þetta eru rúmir 20km og kostaði ekki svo mikið eins og maður hefði haldið, hefði örugglega kostað lítið minna við hefðum tekið næturstrætó og síðan leigubíl þaðan sem hann stoppar. Algjör lúxus að sitja bara í fínum Bens þessa leið í staðin fyrir strætó! Það eru víst fleiri vaknaðir hérna... spurning hvort maður fari að reyna að finna sér e-ð að borða... væri alveg til í bíl núna til að geta skroppið að ná í e-n skyndibita. Er víst bara ekki í boði þ.a. það er bara spurning um að baka e-ð:) fimmtudagur, febrúar 5Er ég krimmaleg?? Maður fer að velta því fyrir sér þegar maður er látinn skanna farangurinn sinn eftir báðar leiðir í síðustu tveim ferðum til Íslands. Ungt fólk á leið frá Køben hlýtur að vera e-ð spúkí því bæði við og HBI&IP hafa lent í því í seinustu tveimur ferðum að þurfa að láta farangurinn upp á brettið í Keflavík. Hins vegar þegar komið er til Køben þá er handfarangurinn skoðaður áður en maður kemst inn í fríhöfnina hjá hluta fólksins. Við Helga Björt þurftum báðar að fara þar en strákarnir sluppu. Síðan pípti á okkur báðar og maður leit út eins og e-r bófi þegar þeir voru með svona lítið leitartæki á okkur. Ég veit að það er beltið mitt sem pípir alltaf á og þarf ég því alltaf að rífa af mér beltið þegar ég fer í flugvélina ef ég er með það á mér. Annars voru þessir tollarar e-ð að reyna að vera fyndnir. Einn þeirra spurði mig frekar alvarlega hvort þetta væri pokinn minn (fríhafnarpoki úr Keflavík), ég gat ekki annað en játað því. Þá sagði hann að ég mætti ekki taka þetta með inn í landið og dró upp Ferrero Rocher nammikassa sem ég hafði keypt. Ég vissi ekki alveg hvað var í gangi, varð að einu spurningamerki í framan og sagði að það mætti alveg koma með þetta, fattaði síðan 2sek síðar að hann væri að grínast í mér og sagði að hann fengi ekki nammið mitt. Þá hló hann bara. Svona er ekki sama hvort þeir gera grín í okkur eða við í þeim... Eftirá fannst mér þetta bara fyndið:-) þriðjudagur, febrúar 3Komin enn eina ferðina "heim" Þetta heim hugtak er orðið töluvert brenglað, ég fer heim til Íslands og svo líka heim til Danmerkur þ.a. ég er í raun alltaf á heimleið;) Við fórum heim með sömu flugvél og Helga Björt og Ingibjörn og var Imba búin að taka frá sæti fyrir okkur öll í fremstu röðinni þ.a. það var alveg feikinóg pláss fyrir fæturnar. Þegar við vorum nýkomin heim þá kom Fjóla færandi hendi úr búðinni en hún hafði keypt brauð, jógúrt og mjólk handa okkur þ.a. við þurfum ekki að fara í búðina fyrr en á morgun, ALGJÖR SNILLD!!! Takk fyrir hugulsemina!!! Í kvöld er svo afmæli hjá Nínu í 13A en við misstum víst af alveg svaðalegu partíi hér um síðustu helgi þar á bæ. Síðan síðustu skrif höfum við bókstaflega verið á fullu!! Komum aftur í bæinn á laugardeginum og fórum þá aftur upp í Bláfjöll. Sunnudagurinn var dagur heimsókna og á mánudaginn vorum við að útrétta og heimsækja ennþá meira. Hefðum líklegast þurft helmingi lengri tíma á landinu til að geta gert allt sem við höfðum áhuga á að gera og hugsanlega að ná að slappa pínulítið af. Svekkelsi ferðarinnar er tvímælalaust samt að ferðatölvan okkar kom úr viðgerð í gær og pabbi kom ekki með hana heim fyrr en um kvöldið en þá gleymdu þeir alveg að ganga frá henni, þ.e. vantaði lokið yfir netkortið og e-rjar fleiri skrúfur! Erum alveg frekar mikið svekkt yfir því. Annars er núna kominn tími til að slétta hárið ef ég á að geta farið út úr húsi á eftir... ekki læt ég sjá mig eins og e-ð lukkutröll;) |
|